Sunday, November 23, 2008

Opal í Oxford

Í gær var svokallað "Bring your own" kvöld í nemendafélaginu í college-inu mínu. Sem sönnum þjóðræknum Íslendingi sæmir tók ég að sjálfsögðu með 1/2 l af Opal og beið spenntur eftir því hvernig það mundi falla í kramið. Það kom skemmtilega á óvart að mörgum fannst Opalið ansi hressandi en þó leyndust nokkrir svartir sauðir inni á milli sem gátu ekki klárað það sem þeim var skenkt í glösin.

Tóku þá við hinar ýmsu tilraunir með að búa til áfengisblöndur með Opali. Eftirfarandi var prófað og dæmt:
1. Opal + rauðvín. Hryllingur
2. Opal + tonik. Skömminni skárra, en samt ekkert sem maður á eftir að panta sér á bar í Rvk.
3. Opal + Amaretto. Ótrúlegt en satt þá reyndist þetta vel drykkjarhæft og klárlega blanda kvöldsins. Fyrir þá hugrökku er því ekki úr vegi að fara á barinn í Reykjavík, vera svolítið frumleg(ur) og panta þennan drykk. Ég tek þó enga ábyrgð á því að þetta komi til með að bragðast vel, hugsanlega voru bragðlaukarnir enn í sjokki eftir Opal + rauðvíns blönduna...

6 comments:

Jón Emill said...

Prófa þetta einhvern daginn :)

Anonymous said...

prufa þetta þegar heróínið er búið.

Jón Emill said...

Er að hugsa um að prófa Opal í Red Bull einhvern daginn...

Anonymous said...

Þú ert aldrei að fara að toppa þrefaldan vodka í bjór... það er sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana!

alvar said...

"Æ´lll have a tribbúll gin in tónikk, bíkos æm an Æslandikk Vækíng"-Nonni á barnum þar sem ég tipsaði á við fursta frá Bahrein.

Anonymous said...

Ásgaur, byrjaðu nú að æfa þig fyrir 5 tíma átveislu 22.des (kl.19)